Jæja þá eru allir komnir heim heilir á höldnu eftir ÓGLEYMANLEGA
ferð!! En ekkert smá gott að vera komin heim eftir erfiða en
frábæra helgi á Hróaskeldu!
Berlín var sem sagt geggjuð og við allar ekkert smá ánægðar með
dvölina þar!! Fórum í túr um borgina og sáum alla helstu staðina,
minnismerkið um gyðingana, museum island, hitlers bunker,
Berlínarmúrinn, Brandenborgarhliðið og fullt fleira og áttum mjog
svo góðann dag sem endaði á góðum mat!!
Vorum mjög ánægðar með
þessa stuttu dvöl!!
Fórum til Hróaskeldu á þriðjudaginn fyrir rúmri viku! Tókum lest
til Hamborgar, svo til Ringsted og þaðan til Hróaskeldu! Lestin
þangað var full af krökkum sem voru að fara þangað, mættir með
bakpokana, stígvélin og regngallanna og ekki veitti af!!! Tróðum
okkur í lestina sem fór á festival svæðið ásamt fullt af drullugum
krökkum með mat og bjór til helgarinnar
Mættum á svæðið og það var þetta ágætis veður og allir hressir
bara! Vorum frekar týndar og tjaldið okkar ekki á staðnum svo
Ragnheiður og Steinunn fóru að ná í tjaldið til Guðgeirs sem var
svo góður að dröslast með það til DK
Við Elín vorum eftir að
reyna að finna út úr svæðinu og leituðum að tjaldstæði í örugglega
þrjá tíma, keyptum lífsbjörgina, stígvél og teppi þar sem drullan
var sirka tíu sentimetra lag, og svo kom kvöld! Við fundum
svæði úti í rassgati, ekki nálægt tónleikasvæðinu en það var pláss
og það var ekki mikið um þau! Stelpurnar komu með tjaldið og þá
auðvitað byrjaði að rigna svo það var tjaldað í niðamyrkri og
rigningu sem var ekki til að bæta skap viðstaddra!! Svo fórum ég og
Elín í regnslánum að ná í farangurinn sem var hinumegin á
svæðinu og það var langt í burtu!! Ragnheiður og Steinunn
meikuðu ekki alveg blautt tjald sem var svo sem skiljanlegt og fóru
til Kaupmannahafnar á hótel en ég og Elín vorum eftir í tjaldinu
sem var allt í lagi, samt pínu kalt!!
Miðvikudagurinn var ágætur, fórum til Hróaskeldu með fullum
strætó af stígvéluðum krökkum og versluðum mat og regngalla og
fleiri nauðsynjar!! Eyddum bara deginum þar þar sem það var ekki
svo mikið um að vera nema drulla á svæðinu! Allur bærinn var fullur
af krökkum í stígvélum með poka og dót og allar búðirnar voru út í
drullu
Borðuðum Matilde kókómjólk og maríukex á götunni og fórum
aftur í tjaldið! Svo komu stelpurnar og sváfu hjá okkur og það
byrjaði að rigna!!
Og það rigndi og rigndi og rigndi alla nóttina og allann
fimmtudaginn og allt fimmtudagskvöldið!!! Það hefur víst aldrei
rignt jafn mikið í sögu Hróaskeldu!!! Enda var allt blautt og
svæðið var meira svona stöðuvötn og drulla upp að öklum! Fólk var
farið að grafa skurði til að veita vatninu frá tjöldunum sínum og
reyna að bjarga dótinu!! Við Elín fórum í sturtu sem var ágæt!
Hefðum kannski ekki þurft þess þar sem það var sturturigning úti!!!
Fórum svo aftur til Hróaskeldu og þar var líka rigning og fullt af
drullugu fólki!! Fórum svo aftur á svæðið með meiri mat og
bjórkassann sem molnaði niður vegna bleytu á leiðinni
Fórum að
sjá Arcade Fire, Lcd Soundsystem og Björk á Orange um kvöldið í
mígandi rigningu og kulda en fólk gerði gott úr þessu og skemmti
sér!! Allt góðir tónleikar!!! Sváfum í tjaldinu sem fór að leka og
það var pínu blautt en reddaðist!!
Á föstudaginn fengu Steinunn og Ragnheiður nóg og ákváðu að fara
heim á laugardaginn og fóru til Odense á föstudaginn! Við Elín
vorum eftir þar sem Hróarskelda hefur verið draumur minn lengi og
engin rigning átti að stoppa það!! En við gerðum gott úr því þó við
hefðum viljað hafa þær hjá okkur lengur!! Söknuðum þeirra mikið í
Kaupmannahöfn!!! En við Elín fórum að sjá Mando Diao og redduðum
svo gistingu á hosteli i Kaupmannahöfn og fórum þangað með dótið!!
Við vorum ekki einar að flýja svæðið, fólk var að fara í umvörpum
og fullt af fólki fór til KBH! Fórum aftur á svæðið og það var hætt
að rigna
Sáum hluta af Beastie boys, hluta af Klaxons,
Trentemöller, Queens of the Stone age og endðum fremst nánast á
Peter Bjorn and John sem voru geggjaðir!! Fílaði alveg að geta
sungið með og klappað!!
Á Laugardaginn byrjuðum við snemma og mættum á The Thermals i
Odeon sem voru geggjuð
!!! Þá sást smá til sólar og allir öskrandi
sol, sol og voða happy!!
Hitti Gunna vin Óskars sem ég hef ekki
séð í mjög langann tíma og Nínu hans og það var geggjað!! Tókum því
rólega til fimm! Á milli komu tvær skúrir en við náðum
einhvernveginn að vera í Spoken Word tjaldinu og á klósettinu þau
augnablik
Sáum svo Thomas Dybdahl sem var geðveikur!!!! og svo
smá af Flaming Lips sem ég fílaði ekki alveg
svo Loney, Dear sem
voru mjög góðir og við fíluðum þá báðar
Tókum hluta af The
Whitest Boy Alive og svo the Who! Fundum skagakrakkana og vorum þar
og hlustuðum svo á Red Hot Chili Peppers þar!! Þeir voru ekki eins
góðir og maður bjóst við, kannski kuldi og drulla sem spilltu pínu
fyrir en ég var sátt með að heyra Californication!!
Tókum The Ark á Sunnudaginn sem var góð byrjun á góðum en
þreytttum degi! Þeir voru athyglissjúkir en þvílík stemmning og
allir í góðu skapi eftir það!! Veitti ekki af eftir allt sem á
undan hafði gengið í veðri og öðru! Sáum smá af Wilco og þá kom
sól
Sátum bara í sól og fínu á Artic Monkeys
Svo var bara
sól og fínt eftir það!! Fórum að borða fyrir Muse en lentum svo í
því óláni að týna hvor annarri og mér hefur sjaldan liðið svona
bjargarlausri á ævi minni!! Vorum hvorugar með síma sem var
vitleysa og margir tugir þúsunda manns sem flyktist að Orange og
ekki séns að finna neinn!!! Hitti sem betur fer Lindu vinkonu
Elínar og vini hennar og ég var bara með henni á meðan Elín greyið
var ein! Horfuðum á Muse í geggjuðu endaveðri og þeir voru mjög
góðir utan við að við vorum týndar!! Eftir Muse fór ég að
innganginum og ætlaði mér að bíða þar þangað til Elín kæmi út en
svo bara kom hún ekkert og ég þorði ekki að fara neitt og var
alvarlega farin að hugsa um að tala við appelsínugulafólkið og
biðja um hjálp!! Svo var ég búin að bíða soldið lengi og orðið kalt
og allt var frekar vonlaust og fólk streymdi út! En svo loksins kom
Elín og við hágrátandi að faðmast og fólk hélt örugglega að við
værum eitthvað geðveikar
En vá hvað þetta var hræðilegt!!! elín
var búin að hringja heim, og mamma hennar í mömmu mína og hún í Ásu
Katrínu og Elín búin að tala við Hjalta og Unni og alla og allt í
rugli! Svo við þurftum að hringja í alla og láta vita að allt væri
í lagi!! Svo biðum við ótrúlega fegnar eftir strætó og tókum svo
lestina eftir ógleymanlegt kvöld og ógleymanlega Hróaskeldu Hátíð
til Kaupmannahafnar!!
Hróaskelda einkenndist sem sagt af drullu, vatni, rigningu,
stígvélum og góðri tónlist!!
Sé ekki eftir að hafa haldið
þetta út!!! Ætla svo aftur á næsta ári!! Skemmtunin núna
eyðilagðist aðeins út af veðri og öðru en tónlistarlegaséð var
þetta geggjuð hátíð!!!
Vorum glaðari en allt að komast á hótel á sunnudeginum og sofa í
góðu rúmi, með sæng og fara í almennilega sturtu, hafa sjónvarp og
stór, þykk handklæði!!! Og morgnumaturinn var geggjaður
Verslunin fór aðeins yfir Strikið á mánudeginum
Vorum með nokkra
stóra poka þegar við komum heim
En ánægðar og fórum á Mongolian
Barbecue og borðuðum geggjaðann mat!!
Röltuðum um Cristianiu á
þriðjudaginn og fórum á Sunset og biðum eftir að komast heim!! Það
var hægara sagt en gert að koma öllu fyrir í töskunum en ég var svo
stolt af mér að troða öllu í bakpokann sem var bókstaflega að
springa!! Þurftum líka að borga yfirvigt
Kastrup var troðinn af
ungu fólki að fara heim og fullt af íslendingum! Alveg eins og
Strikið sem var bara eins og Laugavegurinn! Vorum ógeðslega glaðar
að komast heim og knúsa mömmu og bara vera heima!!!!
GEÐVEIK, EFTIRMINNIILEG OG FRÁBÆR ferð í alla staði!!!!! Hefðum
viljað vera saman í endann en svona er þetta!! TAKK, TAKK, TAKK
elsku elsku elsku vinkonur mínar fyrir ógleymanlegt interrail og
TAKK ELSKU Elín fyrir að meikað Hróaskeldu með mér og fyrir dvölina
í Kaupmannahöfn!!! Þetta var allt æðislegt!!!!!
Stelpurnar blogga kannski hérna fyrir sína hönd en ég hef sagt
mitt
Förum svo að vinna í því að troða inn myndunum, þær voru aðeins
fleiri en rauðar tær
Væri líka geggjað ef þið hinar gætuð sent mér myndirnar ykkar og
ég sendi á ykkur og svona!!!
TAKK fyrir allt og takk fyrir að fylgjast með allir og fylgist
með myndum áfram
Nanna Interrailari 